<$BlogRSDURL$>

sunnudagur, desember 03, 2006

Kominn tími til....

Ég er voða löt að blogga þessa dagana, enda kannski ekki mikið til að blogga um, hálf sjoppuleg þessa dagana eitthvað. Þetta verkefni sem ég á að vera að gera er að sliga mig, langar miklu frekar að vera að skreyta og gera eitthvað jóladæmi og njóta þess að vera hérna í lúx í staðinn fyrir að skrifa, langar líka miklu frekar að gera ritgerðina mína heldur en þetta verkefni, það er í leiðinlegri kantinum þetta verkefni.

En nóg um það, ég á eitthvað erfitt með að komast í jólaskap þessa dagana (sennilega út af verkefninu), fór til Trier með Halldóri í gær og ætluðum við að gera einhver jólainnkaup en ekki gekk það nú vel, það var jólamarkaður í bænum og það var bara hreinlega ekki þverfóta fyrir fólki, bara allt allt of mikið og maður dettur úr öllu stuði til að versla. Hugsa að ég reyni bara að fara einhver daginn í miðri viku niðrí miðbæ í lúx og versla, meiri líkur á að maður geti labbað um án þess að troðast undir af brjáluðum túristum.

En Manchester eftir þrjá daga, líka mall þar sem við ætlum að kíkja á á fimmtudeginum, það er víst eitt af þeim stærstu í evrópu, maður getur kannski verslað eitthvað þar.

Svo er vonandi París á föstudag og fram á sunnudag, kíkja á Andreu skvízu og slappa af.

Þannig að það er nóg framundan, ætti að geta skrifað nóg á næstunni ;0)

Best að láta þetta duga í bili... fara að horfa á einhverja rómantíska mynd með kallinum, jebb ég fékk að ráða ;0)

Krílið kveður

Jóla hvað

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting by HaloScan.com