<$BlogRSDURL$>

sunnudagur, nóvember 07, 2004

Akureyri og ótrúir leikarar

Já þá er maður kominn heim úr höfuðborg Norðurlands og óhætt að segja að ferðin hafi verið stakasta snilld frá upphafi til enda.

Ég mætti galvösk í Furulundinn um kl. 17:30 á föstudaginn, eftir þriggja og hálfs tíma akstur um holt og hæðir. NASCAR 3 Byrjað var á að slappa aðeins af og spjalla, svo var haldið á Greifann þar sem við tróðum okkur út af snilldar pizzum, Pizza Pie þá var haldið á Ali sportbar þar sem við fórum á kostum í pool, Billiards ætluðum að taka tvo leiki en það var aðeins of mikil bjartsýni þar sem við ætluðum í bíó hálftíma seinna og við erum ekki það miklir snillingar í þessum leik að ná að skjóta niður kúlu í hvert einasta skipti.
Any way í bíó var haldið á stórmyndina Ladder 49 Fireman fínasta mynd en ekki fara á hana ef þið ætlið á djammið á eftir... við allavega meikuðum ekki að fara á barinn þegar myndin var búin, fórum bara heim til Beggu, átum snakk og kjöftuðum og spiluðum Yatzy langt fram á nótt.

Laugardagurinn var uppbyggilegur... vaknað á hádegi, farið í sund - helvíti nice Synchronized Swimming , en svo tóku við minna uppbyggilegir hlutir eða nammilandið í Hagkaup og búðarráp. Begga keypti reyndar þetta forláta píluspjald í Tiger á 400 kall og var það upphafið af mikilli keppni og götóttum gólfum og veggjum. Darts


Any way, þegar við náðum loksins að slíta okkur frá pílukastinu og teiknimyndunum þá fórum við og fengum okkur að eta á Götugrillinu... snilldar veitingarstaður, sjúklegur matur. En þar sem klukkan var orðin tíu loksins þegar við vorum búnar að eta þá drifum við okkur til Beggu og náðum í áfengið okkar og tókum kraftgöngu heim til Óskar þar sem kósý partý var í gangi. Mér tókst að hneyksla fólk eins og venjulega með mikilli drykkju en það voru víst ekkert rosalega lengi að hlaðast upp tómu flöskurnar fyrir framan mig, fólk heldur örugglega að ég sé á góðri leið með að verða alki svona við fyrstu kynni. Downing Shots En allavega um eitt leytið var svo haldið á kaffi Akureyri sem þegar var orðið nokkuð fullt af mannskap allavega ekki mikið um sæti. Þannig að ég og Begga ákváðum að setjast við barborðið og panta okkur einn drykk og sjá svo til hvort við myndum færa okkur yfir á Ali sportbar eða hvort eitthvað borð losnaði. Það vildi þá bara svo skemmtilega til að maður sem situr við hliðina á mér vindur sér að mér og segir "þú ert rosalega falleg stelpa" með þessari líka kunnuglegu rödd og þegar ég sný mér við þá blasir við þessi líka ágætlega þekkti leikari hér á landi, ég náttúrulega sprakk úr hlátri en náði að jafna mig og sat og spjallaði við þennan ágæta mann í dágóða stund, við urðum samt fyrir miklu ónæði af ungum stúlkum sem vildu ólmar fá að dansa við manninn þannig að það endað með því að hann fór og dansaði við þær og þar með hélt ég að ég væri laus, en nei aldeilis ekki... stuttu seinna var ég aftur komin í hörku samræður við manninn en í þetta skiptið þurfti ég að eyða öllum mínum kröftum í að koma honum í skilning um að hann væri giftur maður og ég hefði engan áhuga á að koma upp á hótel og laga pípurnar í herberginu hans eins og hann orðaði það svo skemmtilega Begga náði nú samt að bjarga mér frá honum að lokum og verð ég henni ævinlega þakklát fyrir það Við dönsuðum eins og vitleysingar eftir það en ég veit ekkert hvað varð af Ósk ... ég er víst ekki alveg sú skemmtilegasta til að fara á djammið með ... lendi alltaf í einhverri svona vitleysu... spjallandi við hina og þessa ... hugsanlega eitthvað að gera með innbyrgt áfengismagn. Secret Any way snilldar kvöld og ekki verra að drekka á kostnað fátæks leikara.

Held samt að fyrirlestur minn um gildi hjónabandsins hafi ekki virkað á hann, hef sterkan grun um að ein af aðdáendahóp hans hafi kíkt á pípulagnirnar á hótelherberginu hans Bug Eyed

Hann bauðst meira að segja til að taka hringinn af sér ef mér liði betur við að fara með honum þannig... hvað er með fólk í dag.... afhverju er bara ekki hægt að vera trúr sínum maka... ja maður spyr sig Disappointed 3

Any way... dagurinn í dag fór svo bara í svefn, pílukast, keyrslu og nú lærdóm... gaman gaman

Sem sagt... snilldar helgi að öllu leyti og á ég pottþétt eftir að kíkja á Beggu gellu aftur við fyrsta tækifæri Bouncy 8


Krílið kveður.... góða nótt Bird On Head


miðvikudagur, nóvember 03, 2004

ZZZZZZZZZZ Pillow

Hvernig læknar maður svefnsýki.... ég hreinlega get bara ekki vaknað á morgnana lengur... slekk bara á klukkunni og sef áfram án þess að muna neitt. Ef ég ætti ekki svona góða foreldra sem hugsa um mig á gamalsaldri þá myndi ég bara ekkert mæta í skólann þessa dagana Alarm Clock 3

Þetta er þræl alvarlegt ástand þar sem ég á endalaust mikið eftir að læra til að vinna mig upp fyrir próf sem by the way nálgast allt of hratt. Cry

En svona til að gleyma því þá stefni ég á að kíkja á höfuðborg Norðurlands um helgina... leggja af stað í goody fýling á föstudag og kíkja á Beggu gellu og Ósk skvízu og bera saman djammstaði höfuðborga landsins þ.e. Akureyri og Akranes Hot

Planið er að skella sér á sveitaball og kaffihús og í partý og meira sniðugt.... upphaflega var nú planað að fara í hópferð en mér sýnist nú allt stefna í að það verði bara ég og mínir persónuleikar sem enda með því að fara .... Party poops Blah Nei bara djók ... ég vona að hinar gellurnar ákveði að mæta líka... þá verður miklu skemmtilegra Butt Dance

Ég var að spá í að koma með einhver vitsmunaleg comment um bandarísku forsetakosningarnar en ég held ég haldi bara kjafti.... mér er orða vant á þessari vitleysu Kerry Vs. Bush , læt Svandísi bara um að ræða þessi málefni á sinni síðu, enda er ég bara að læra að verða aumur lögfræðingur.

Eldgosið er hins vegar eitthvað sem mér finnst voða spennandi... Volcano Samkvæmt mbl.is barst Flugmálastjórn skeyti frá sænsku veðurstofunni í nótt þar sem tilkynnt var um gosmökk sem náði frá 15 þúsund fetum og upp í 50 þúsund feta hæð yfir sunnanverðri Skandinavíu.

Þetta er sko alvöru.

Æji ég nenni ekki meiru.... alveg að verða biluð á þessu öllu saman.... hei tíminn er líka búinn og þá tekur verkefnavinna við

Krílið kveður .... party party Sneaky


This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting by HaloScan.com