<$BlogRSDURL$>

þriðjudagur, maí 25, 2004

Jæja það er orðið annsi langt um liðið, skólinn búinn og skemmtilegra líf tekið við

Endurtektarprófin hafa ekki gengið sem skyldi og er ég því ekki bjartsýn varðandi næsta ár... held að ég hafi klúðrað mínum málum allsvakalega núna, algjör illi.... kæruleysið uppmálað

Síðustu dögum hefur hins vegar verið varið í algjört letilíf, sofið fram eftir, gert sem minnst á daginn og hitt vini og kunningja á kvöldin. Hitti t.d. Ósk í gær, gamla vinkonu mína og voru rifjaðar upp gamlar og góðar minningar frá bernskuárunum... erum búnar að þekkjast í 19 ár, þetta hélt ég að maður gæti ekki sagt fyrr en maður væri kominn yfir þrítugt, en þetta er virkilega ógnvekjandi vísbending sífellt hækkandi aldur minn

Dagurinn í dag fór svo í að passa frændur mína... reyndar átti ég bara að vera heima þegar þeir komu heim í skólanum og vera hjá þeim í hálftíma - klukkutíma en þar sem ég nota hvaða afsökun sem býðst til að passa þessa villinga þá ákvað ég að vera hjá þeim í allan dag, splæsti á þá hamborgara, langloku og bragðaref - kúlaðasta frænkan sko

Reyndar fóru tveir eldri strákarnir að veiða seinni partinn og veiddu u.þ.b. 60 fiska... allt titti sem þeir ætluðu svo að skera upp og kanna innyflin í ... eins gott að dýraverndunarsinnar komist ekki í þessa síðu hjá mér

Svo var bara pizza og læti í kvöld þar sem Gugga systir var svo ánægð með nýja bílinn sinn að hún ákvað að þakka pabba og mömmu fyrir hjálpina með því að splæsa á okkur pizzum. Svo var bara japplað á pizzunni og horft á Fram - ÍA sem Skagamenn sigruðu með glæsibrag 0-2 og áttu það fyllilega skilið.


Jæja best að halda áfram þessu letilífi og fara að glápa á imbann

miðvikudagur, maí 19, 2004

Jahérna... mér tókst að klúðra hinu ómögulega... ég skil bara ekki upp né niður í sjálfri mér.... hvernig fór ég bara að þessu. Já þið eru kannski ekki að fatta hvað ég er að meina en atvikalýsingu er þannig háttað að ég var í munnlegu prófi í Evrópurétti og dró þar hálfgerða draumaspurningu sem ég by the way taldi mig vera nokkuð færa í en nei aldeilis ekki... á meðan ég var að ganga inní fundarherbergið kom þessi helst til leiðinlega tilfinning yfir mig... allt í einu mundi ég bara ekki neitt... öll vinnan til einskis, engir dómar (nema reyndar tveir grundvallardómar) og ekki neitt...djöfull skammaðist ég mín gat stamað upp einhverjum fróðleik um efnið en varla nóg til að ná prófinu... ég fer að fara fram á að fá að taka skrifleg próf í öllu... þar sem ég á við krónískt málleysi og heilaleysi að stríða í munnlegum prófum. Var meira að segja búin að læra fyrir þetta próf aldrei þessu vant

Það þýðir víst ekki að gráta það.... ég verð bara að gjöra svo vel að taka á þessu vandamáli mínu... fara í dáleyðslu eða sálfræðings eða eitthvað

Jæja þá er að fara að læra fyrir stjórnsýsluréttinn... ef ég fell í því líka (sem eru by the way miklar líkur á) þá er ég í djúpum skít

Ég veit ég veit þá á ég ekki að vera að leika mér á netinu og skrifa svona sorgarsögur til að bögga ykkur lesendur góðir og því kveður Krílið í bili ... ble ble

sunnudagur, maí 16, 2004

Tvær góðar kannanir svona rétt til að lífga upp á daginn.

Bjóst nú samt aldrei við þessu... hélt að bleikur eða blár væri minn litur


YELLOW



You are very perceptive and smart. You are clear and to the point and have a great sense of humor. You are always learning and searching for understanding.




Find out your color at Quiz Me!




Þá er það stóra spurningin... stend ég undir nafni????

Ekki taka þessa könnun samt fyrir framan litla fólkið ... það gætu verið eitthvað um Adult Ads á þessari síðu sem gætu reynst erfiðar til útskýringar

juicy



You Are A Juicy Kisser!


About Your Kissing Style:


Your lips are totally kissable baby, and you know how to use them.

You are the perfect - with the right combo of lips and tongue.

It's important to flaunt it, so kiss early and often on dates!


What Your Kissing Style Says About You:


You're 100% hot, and you know it. You're all about being sexy, all the time.

You have no trouble scoring dates or kisses ...

Just trouble getting rid of jealous people trying to show you up!

You attract attention from every hot guy and girl... even before you show off your kissing skills.


Your Personal Kissing Matches and Mismatches:



Go out with another Juicy Kisser and you'll be the power couple of the party. Sure, you'll have a ton of
hot kisses, but only after everyone there has checked you guys out. Hook it up with a
Romantic Kisser and you may have found your soulmate.
Romantic Kissers will be attracted to your appeal, and you'll appreciate their loyalty.



Keep away from Carnal Kissers! They'll just try to play you for sex, and
ruin your reputation in a heartbeat. And Freaky Kissers are way too wild and
rough for your style. You prefer pleasure to pain, thank you very much.



How Do *You* Kiss?

More Great Quizzes from Quiz Diva



laugardagur, maí 15, 2004

ÞVÍÍÍÍÍLÍK VONBRIGÐI Jónsi bara í 19 sæti

Nei nei greyið var ágætur en hann stóð ekkert uppúr...

Úkraína var nú vel að sigrinum komið... ekki ólíklegt að maður eigi eftir að hoppa og skoppa við þetta lag á einhverju djamminu... og stór plús fyrir outfittið... nokkuð cool sko

Any ways beilaði á öllum partýum þessa helgina... algjör illi... ákvað að taka námið alvarlega svona einu sinni og er búin að vera að læra á fullu síðustu daga... m.a. til klukkan fjögur í nótt.

Átti að fara í kveðjupartý til Bryndísar í gær en beilaði á því, sorry Bryndís ég lofa að bæta þér þetta upp einhvernveginn.

En þá er best að fara að þjálfa upp leiklistarhæfileikana, standa fyrir framan spegil og þylja upp allt sem ég veit um Framkvæmdastjórnina, Ráðið, Evrópudómstólinn, EES, Myntbandalagið og bla bla bla bla bla Hlýt að geta lært 120 blaðsíður utanbókar

Krílið kveður ... bæ i bili

miðvikudagur, maí 12, 2004

Múhahahahahahahahahahahahaha

Þetta er bara svo ekki satt... ég lít hræðilega út á morgnana og bara allan daginn... ég hins vegar nenni stundum ekkert að gera í því og læt bara sjá mig svona myglaða





You Are a Natural Beauty!


You're the kind of beauty that every guy dreams about...

One that looks good in the morning - without a stich of makeup

That's doesn't mean you're a total hippie chic though

You have style, but for you, style is effortless




What Type of Beauty Are You? Take This Quiz :-)




Find the Love of Your Life
(and More Love Quizzes) at Your New Romance.



mánudagur, maí 10, 2004

hæ ég gleymdi einu... ég verð að monta mig yfir því hvað ég er yndisleg dóttir... af því að ég hafði ekki tíma til að gera neitt sniðugt fyrir mömmu gellu í gær þá ákvað ég að bæta það upp í dag og eldaði þennan dýrindis innbakaða lax með rusty kartöflum og grilluðum sveppum með pestó og gráðosti... fjölskyldan var mjög sátt og ég kem sjálfri mér sífellt á óvart í eldhúsinu ef ég á að segja eins og er

Langaði bara að segja ykkur það

Bæjó

Jahá... annsi langt síðan maður hefur skrifað... ég gjörsamlega sökk oní verkefnavinnuna og hef ekki haft rænu á að skrifa, en djöfull er þetta búið að vera skemmtilegur lokapartur í verkefninu... reyndar var maður orðinn svolítið langþreyttur en það sannaði sig í dag að það var þess virði. Í dag var minns nebbla að flytja platmál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, mjög skemmtilegt vægast sagt... reyndar sá maður ýmislegt sem betur hefði mátt fara en maður lærir af mistökunum og í heildina á litið þá gekk þetta mjög vel. Við í hópsex... þ.e. það sem eftir var af honum stóðum okkur bara vel.

Skelli hérna inn nokkrum myndum sem ég stal af síðunni hennar Hörpu gellu. Ef þið viljið sjá fleiri myndir þá kíkjið þið á link Alotta Fagina

Smá stress klukkutíma fyrir action


Í bílnum á leiðinni í Héraðsdóm Reykjavíkur


Jolly og flottar á því soldið í anda Legally Blond hmmm


VÓ VÓ VÓ svooo professional


Háttvirtu lögmenn stefnanda (óska samt eftir skýrari mynd ef einhver á)


Dómarar vor


Minns og kennari vor að málflutningi loknum




Hei svo komst ég að því að ég er froskur... ekki skrítið að ég nái mér ekki í kall

kermit.jpeg
You are Kermit the Frog.
You are reliable, responsible and caring. And you
have a habit of waving your arms about
maniacally.

FAVORITE EXPRESSIONS:
"Hi ho!" "Yaaay!" and
"Sheesh!"
FAVORITE MOVIE:
"How Green Was My Mother"

LAST BOOK READ:
"Surfin' the Webfoot: A Frog's Guide to the
Internet"

HOBBIES:
Sitting in the swamp playing banjo.

QUOTE:
"Hmm, my banjo is wet."


What Muppet are you?
brought to you by Quizilla

fimmtudagur, maí 06, 2004

hæhæ og hóhó... sælt veri fólkið.

Það var sko farið að sofa fyrir miðnætti í gær í fyrsta skiptið í langan langan tíma en það var líka vaknað kl. 5:00 í staðinn ákvað að ég myndi bara fá far með Hauki bró í bæinn og svo með pabba heim í dag þar sem ég nenni ekki að keyra suður og aftur heim og svo aftur suður og aftur heim á einum degi. Við Begga ætlum nebbla í bíó í kvöld.
Ég var sem sagt mætt í skólan rúmlega 6:00 í morgun... nokkuð gaman... notaði tímann til að læra fyrir evrópuréttarpróf og byrja aðeins á ræðunni minni fyrir málflutninginn á mánudaginn... jibbý.

Any way heyrði frá gamalli og góðri vinkonu í gærkveldi, við höfum ekki heyrst í nokkur ár held ég bara þannig að það kom skemmtilega á óvart, við spjölluðum líka ábyggilega í klukkutíma eða meira og er stefnan tekin á að hittast sem fyrst

Jæja best að halda áfram að læra

Bæ bæ

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting by HaloScan.com