<$BlogRSDURL$>

fimmtudagur, september 23, 2004

Leidís og djentelmen

Mér var að berast þær mikilvægu fréttir að kveðjuhóf fyrir aðal djammara landsins verður ROSALEGT Shock 4


Það er því mjög mikilvægt að allir sem ætla að nota síðasta tækifærið til að verða vitni að þessum stórkostlegu stúlkum gera það sem þær gera best (djamma og drekka bjór), taki laugardaginn 25. september n.k. frá. Gleðin hefst kl. 14 og stendur eins lengi og fólk getur staðið í lappirnar Party Time

Þetta byrjar allt með Gullmóti Gummóar sem fer fram í Skógrækt Akranes og hefst kl. 14:00, þessu má enginn missa af... ég er ekki að djóka... þetta verður svo mikil snilld. Eins og nafnið gefur til kynna þá er um íþróttamót að ræða og geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi Fat Woman 4 Scrawny 4 Downing Shots og eins og allir vita þá hefur áfengið bjargað mörgum frá íþróttabölinu og því er um að gera að sulla aðeins á meðan svo þetta verði nú ekki allt of erfitt. Bottoms Up Um kl. 18 tekur svo við hinn stórskemmtilegi leikur Bingo og Bingo + áfengi er ennþá skemmtilegra....
Og svooo kl. 20 verður haldið á Mörkina og anað út í allsvakalegt djamm þannig að það er eins gott að vera búin að hita vel upp um daginn....

Þetta verður bara snilld og það sem er enn betra er að ég fékk ekki verkefni sem ég bjóst við að fá þannig að það verður bara djammað og djammað og djammað og ???? Bachelorette Party


Það er skyldu mæting

Krílið kveður party party Moony 2







mánudagur, september 20, 2004

Grámyglulegt herbergi með ljótum gardínum, illa þvegin tússtafla, tveir tölvunördar og einstaklega óþægilegir stólar er það sem er fyrir mínum augum í augnablikinu.... hljómar ekki vel en svona er þetta blessaða skólalíf. Ég ákvað að prófa að sitja í skólanum að læra svona einu sinni, ætlaði að reyna að vera búin með verkefni í hjúskaparrétti fyrir kl. 18:50 í kvöld en mér verður sennilega ekki að ósk minni, ég gerði nebbla skemmtilega uppgötvun í verkefninu áðan sem varð til þess að ég varð að fara að breyta og bæta, miðlaði þessari uppgötvun minni til hinna gellanna og allt fór á fullt hjá þeim við lagfæringar.... vona bara að allir fái þokkalega einkunn. Ótrúlega nasty gildrur hjá þessum kennurum stundum.

Any way fór á snilldardjamm á föstudaginn og það í stórborginni Reykjavík, já ég veit þið bjuggust ekki við því að Krílið myndi einhvern tímann viðurkenna að það væri gaman að djamma í borginni en viti menn, einhvern tímann er allt fyrst. Fullkomið kvöld og enginn mórall var ekki einu sinni þunn daginn eftir þrátt fyrir stórkostlegt afrek í drykkju.... 5-6 rauðvínsglös og 8 ICEar og stóð samt í lappirnar og talaði bara pínkulítið vitlaust sem ég geri hvort eð er svona almennt.

Annars er maður bara að drukkna í verkefnum þessa dagana þannig að ef ég mæti ekki í partý á laugardaginn þá vinsamlegast hringjið í 1 1 2 og látið þá mæta heim til mín eða upp í skóla með pappírstætara og ná mér upp úr verkefnunum. Það verður bara að vera tími fyrir smá djamm sérstaklega þegar aðalpartýliðið er að stinga af til útlanda og síðasti sjens til að djamma með þeim.

Jæja best að koma sér heim og fá sér að eta og horfa á fótboltaleik... mæli með því að allir setjist fyrir framan skjá 1 kl. 18:50 í kvöld.

Krílið biður ykkur vel að lifa
Bless

sunnudagur, september 12, 2004

Jahá.... hefur einhver einhverjar hugmyndir???







Your Love Life Is Most Like When Harry Met Sally


Your newest love is someone you least expect
Open your eyes - and heart - a little to find him.




What Movie Is Your Love Life Like? Take This Quiz :-)




Find the Love of Your Life
(and More Love Quizzes) at Your New Romance.





mánudagur, september 06, 2004

Auglýsi hér með eftir einkaþjálfara/þjóni, hann þarf að vera til staðar allar stundir, reka mig í háttinn klukkan tíu á kvöldin, draga mig á lappir klukkan fimm á morgnana og fara með mig út að skokka, reka mig í skólann og sjá til þess að ég sé með holt nesti og að ég borði þetta holla nesti, sjá til þess að ég fari beint heim eftir skóla, fari í ræktina í einn til tvo tíma þegar ég kem heim og hann verður að vera búinn að gera gott prógramm fyrir mig, eftir ræktina á hann að reka mig heim að læra og standa yfir mér þar til ég er búin með allt sem ég á að gera, þá má hann fara að elda hollan kvöldmat og gefa mér að borða og eftir það getur hann fengið smá frí þar til hann á að reka mig aftur í háttinn, hann fær borgað þegar ég vinn í lottói, einhver sem bíður sig fram??? Áhugasamir hafið samband í gegnum comment boxið takk.

Krílið kveður.

sunnudagur, september 05, 2004

EyebrowÆj ég er svo frábær Eyebrow

You Are a Fun Girl!

You are all about having fun - and you don't need to drink to have a good timeSure, you've thrown back more than a few every so oftenBut getting totally stupid and wasted is not your styleYou're the life of the party, by keeping everyone laughing and smiling

Are You a Party Girl? Take This Quiz :-)

Find the Love of Your Life (and More Love Quizzes) at Your New Romance.








This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting by HaloScan.com