<$BlogRSDURL$>

miðvikudagur, júlí 19, 2006

Byrjuð að deyja

Já gott fólk krílið er hér með byrjað að deyja eins og góð vinkona mín orðaði það en það er vísindalega sannað að líkaminn er að vaxa og dafna til 25 ára aldurs en eftir það er allt á niðurleið, hrörnun er hafin.... en þá er nú gott að vera ljóshærður og ekki skilja svona fræði því í mínum huga er ég bara rétt 21 árs.

Annars var afmælisdagurinn bara ótrúlega frábær ... ég bjóst svo ekki við miklu þar sem 18. bar upp á þriðjudegi en það rættist heldur betur úr... byrjaði reyndar á að fara bara í mína vinnu frá 8-16:30, mætti með köku og skinkuhorn sem vakti mikla lukku að sjálfsögðu... en um kvöldið var svo slegið upp þessari líka fínu veislu, átti nú bara að vera nánasta fjölskylda en svo bættust við fimm manns + óvæntur leynigestur sem var sérstaklega ánægjulegt að fá í heimsókn ;0) þannig að úr varð alveg heljarinnar veisla, kampavín og læti bara. Ég fékk meira að segja fullt af pökkum þótt ég væri búin að fá fullt af pökkum fyrir.... Þetta var bara í einu orði sagt geggjaður dagur... hmm það eru reyndar tvö orð...

Any way þakkir til allra sem mundu eftir afmælinu mínu og sendu mér kveðjur og gáfu mér gjafir og fleira og líka allra hinna sem eiga eftir að muna eftir að ég átti afmæli ;0)

Krílið kveður... byrjað að deyja

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting by HaloScan.com